Ás frá Eiðisvatni
IS IS2004135298
Ætt:
F: Þristur frá Feti IS1998186906 M: Lyfting frá Reykjavík IS1991225259
FF: Orri frá Þúfu MF: Geysir frá Gerðum
MF: Skák frá Feti MM: Flís frá Reykjavík
Ás er efnisfoli sem taminn hefur verið í nokkrar vikur, vor og sumar 2008. Hann er mjúkur í skrokknum og töltir undir sjálfum sér með fótlyftu og stæl. Ás ber svo sum ekki af í fegurð innan um önnur hross í haga, en hann bætir það upp með reiðkostahæfileikum. Hann var orðinn ágætlega reiðfær, haust 2008, mest hefur hann brokkað í gegnum tamninguna, og örlítið átt við töltið sem rennur úr honum fyrirhafnar laust með þessari fínu lyftu J. Stökkið er dúnmjúkt takthreint „íþróttastökk“. En það er skap í honum og léttur þvergirðingsháttur, þannig að betra er að vera með öll ljós kveikt ef þannig má orða það. Hann hrekkti hnakk og knapa í fyrstu skiptin í vor, en lét það alveg ógert í sumar. ! Móðir hans Lyfting, sem bar nafn með réttu, var mjög góð reiðhryssa en nokkuð skaphörð og frek. Ás er eina afkvæmi hennar og væntanlega hefur erft eitthvað af lundarfari hennar. Á mynd sem fylgir má sjá hversu léttur folinn er í framfótarhreyfingum, hann er á bak við þann rauða og stendur meira að segja neðar ! Eigandi er Ása Hólmarsdóttir