Lind frá Erpsstöðum
Ætt :
F: IS1993188879 Seifur frá Efra-Apavatni
Ff: IS1980187340 Stígur frá Kjartansstöðum
Fm: IS1987288780 Freyja frá Efra-Apavatni
M: IS1981226005 Sædís frá Meðalfelli
Mf: IS1979125040 Adam frá Meðalfelli
Mm: IS1971286470 Vordís frá Sandhólaferju
Um Lind : Lind er kletturinn í hópnum. Hún er frábærlega geðprúð og traust, og er eitt af þeim hrossum sem er 100%. Lind er algerlega laus við allt sem heitir vesen. Ótrúlega auðveld í umgengi og hefur verið það frá fyrstu tíð. Hvar og hvenær sem er má ná henni, skiptir þá ekki máli hvort hún er nýköstuð eða einhver ærslagangur í hópnum. Hún er ákaflega vel byggð, stór og stælt og ekki skemmir grái liturinn fyrir. Það má segja að hún sé sannkallaður hagaljómi að geðprýði og útgeislun. Lind er hreingeng og býr yfir öllum gangi. Hún stekkur sérstaklega vel,eldfljót og af krafti eins og fleiri afkvæmi Seifs f. Efra-Apavatni sem við þekkjum. (aðeins var sýnt hægt stökk í dómi 2004- hraðastökkið gleymdist L) Einnig hefur hún gott fet og fékk 9 í dómi 2002. Það er gott skeið í henni og okkur grunar nú að skeiðeinkunn í kynbótadómi hafi liðið fyrir mikla skerfstærð og byggingu hennar, þ.e að mun minna hross sem hreyfir fætur ótt og títt í minni skrefum njóti þess betur í einkunnagjöf. Meðfylgjandi mynd segir heilmikið um það. Jæja,!....en það er nú einu sinni réttur hestseigandans að verja og rétta orðspor síns hests. J (og þarf ekki einu sinni að hafa vit á því!) Almennt má segja um Lind að hún er fallegt, hreingengt gæðablóð með afburða geðslag.
Afkvæmi Lindar.
Hrímnir frá Eiðisvatni.
Lómur frá Eiðisvatni
Eyvör frá Eiðisvatni
Eyvindur frá Eiðisvatni
Árberg frá Eiðisvatni
Berglind frá Eiðisvatni
Paradís frá Lundum II