Þyrnirós frá Eiðisvatni
Þyrnirós - IS2001235298
F: Þyrnir frá Þóroddsstöðum M: Valdís frá Erpsstöðum
FF: IS 1989188802 Galdur frá Laugarvatni MF: Kjarval frá Sauðárkróki
FM: IS 1984287011 Hlökk frá Laugarvatni MM: Sædís frá Meðalfelli
Þyrnirós eða Rósa mín, er sérstakur en mjög skemmtilegur karakter. Hún er hrossið sem hneggjar þegar hún sér einhvern nálgast, hvort sem hún er í haga að á húsi. Þetta er hesturinn sem lánaður er gestum bæði vönum og óvönum. Hún hefur veriðð reiðhestur fyrir 7 ára barn því hún er ákaflega hlýðin, taumlétt og mjúk, hefur gott sæti en þó alls ekki löt. Þyrnirós er ómissandi í hestaferðum og stendur sig jafnan frábærlega. Viljugur, kátur, mjúkur gæðareiðhestur. Hvað er hægt að biðja um meira? Í raun má segja að hún fái sér smá „lúr“ eins og nafna hennar sem svaf í 100 ár, þegar börn eru á henni en vakni hressilega þegar fullorðnir koma á bak sem gera meiri kröfur. Þyrnirós er vel byggð, með 8 en hæfileikarnir misskildir ;-) af dómurum. Hún hefur allan gang, töltið best sem er hennar kjörgangur, og brokkar ágætlega (sýndi það svo sannarlega í téðri hestaferð), og skeiðið er til staðar en lítið hefur verið hreyft við því. Hana skortir fótlyftu og meiri kraft í framgöngu til að fá það álit manna að vera gæðingshryssa. Þyrnirós er líka notuð sem vinnuhestur við tamningar því hún er hlýðin og traust. Þyrnirós er algjör moli sem ætti að vera til á hverju heimili eða eins og einhver sagði „ hún er bara svo rosaleg næs“.
Eigandi er Ása Hólmarsdóttir