Þyrnirós frá Eiðisvatni
Sigurjón Hrafn á Þyrnirós
Þyrnirós - IS2001235298
F: Þyrnir frá Þóroddsstöðum M: Valdís frá Erpsstöðum
FF: IS 1989188802 Galdur frá Laugarvatni MF: Kjarval frá Sauðárkróki
FM: IS 1984287011 Hlökk frá Laugarvatni MM: Sædís frá Meðalfelli
Þyrnirós eða Rósa mín, er sérstakur en mjög skemmtilegur karakter. Hún er hrossið sem hneggjar þegar hún sér einhvern nálgast, hvort sem hún er í haga að á húsi. Þetta er hesturinn sem lánaður er gestum bæði vönum og óvönum. Hún hefur veriðð reiðhestur fyrir 7 ára barn því hún er ákaflega hlýðin, taumlétt og mjúk, hefur gott sæti en þó alls ekki löt. Þyrnirós er ómissandi í hestaferðum og stendur sig jafnan frábærlega. Viljugur, kátur, mjúkur gæðareiðhestur. Hvað er hægt að biðja um meira? Í raun má segja að hún fái sér smá „lúr“ eins og nafna hennar sem svaf í 100 ár, þegar börn eru á henni en vakni hressilega þegar fullorðnir koma á bak sem gera meiri kröfur. Þyrnirós er vel byggð, með 8 en hæfileikarnir misskildir ;-) af dómurum. Hún hefur allan gang, töltið best sem er hennar kjörgangur, og brokkar ágætlega (sýndi það svo sannarlega í téðri hestaferð), og skeiðið er til staðar en lítið hefur verið hreyft við því. Hana skortir fótlyftu og meiri kraft í framgöngu til að fá það álit manna að vera gæðingshryssa. Þyrnirós er líka notuð sem vinnuhestur við tamningar því hún er hlýðin og traust. Þyrnirós er algjör moli sem ætti að vera til á hverju heimili eða eins og einhver sagði „ hún er bara svo rosaleg næs“.
Eigandi er Ása Hólmarsdóttir

Eyvör frá Eiðisvatni
Eyvör eftir 2 mánaða frumtamningu hjá Bjarneyju.
IS2006235299
Faðir: IS1996157330 Tígull frá Gýgjarhóli (8,6)
Móðir: IS1997238231 Lind frá Erpsstöðum (8,06)
Eyvör hefur sérlega fallegan og velgerðan háls, samræmið í ágætu lagi, og lendin góð. Höfuðið er frítt en vottar þó fyrir merarskál.
Hún hefur trausta geðslagið hennar móður sinnar og fátt virðist koma henni úr jafnvægi, hún lætur sér fátt um finnast þó að t.d rúlluplast sé dregið yfir hana endilanga. Samt er hún aldeilis ekki dauf að neinu leyti, bara skynsöm og traust, eins og góðar heimasætur eiga að vera. Eyvör hefur allan gang og töltið er mjúkt. Hún virðist einnig stökkva og brokka vel. Það er ekki hægt að segja annað en að hún sé ákaflega eiguleg hryssa.Eyvör var frumtamin haustið 2009 af Bjarneyju. Eyvör var fljót að læra og sýndi allan gang strax í byrjun en valdi þó brokkið. Töltið var fljótt að koma til. Eyvör var hjá Birni Einarssyni á Hvanneyri sem fór með hana í kynbótadóm. Hún endaði með 7,72 í aðaleinkunn, sem skiptist nokkuð jafnt á hæfileika og byggingu. Við erum ósátt með brokkeinkunina sem var bara 7, og skiljum ekki baun í því. Miðað við hvernig Eyvör var í hestaferð sem farin var stuttu eftir sýningu þá vantaði sko ekkert upp á brokkið!!! Af tæplega 100 hrossum í þeirri ferð var Eyvör án efa ein af bestu hryssum ferðarinnar. Hún er feiknayfirferð á tölti, fnæsandi viljug og létt. Þessa vilja allir eiga :-)
Eigandi er Bryndís Hólmarsdóttir

Valkyrja frá Eiðisvatni
Valkyrja ásamt Ásu
IS2006235298
Faðir IS2001187140 - Skrúður frá Litlalandi
Móðir IS1991238231- Valdís frá Erpsstöðum
Valkyrja státar af fallegri byggingu, hefur fallegan háls, reistan og velsettan. Hún er bollétt og nokkuð lofthá. Prúðleikinn er ekkert til að tala um sértaklega, ekki eins og hjá föður hennar Skrúði f. Litlalandi. Hún er bara assk... hugguleg hryssa. (þó eigandinn segi sjálfur frá.) Valkyrja er lifandi og vaskleg með allan gang.
Valkyrja er orðin ágætlega tamin en þó vantar aðeins upp á markvissari þjálfun og meiri "aga-gang-tamningu". Hún Valkyrja er margslungin og sérstakur persónuleiki, og það getur verið dagamunur á henni. En það er gaman, ot svolítið krefjandi, að eiga við hana sama en samt sem áður er hún alltaf svo yndisleg.
Eigendur eru Ása Hólmarsdóttir og Sigurður Sigurjónsson.

Vigdís frá Eiðisvatni
Vigdís í heimahaganum
Vigdís frá Eiðisvatni IS2008235299
Móðir: Daladís frá Eiðisvatni IS2002235298 Ae: 8,14 (sjá hryssur)
Faðir: Hágangur frá Narfastöðum IS1997158469 Ae: 8,31 (skeiðlaus)
Vigdís fékk nafnið Vigdís vegna þess að hún er fædd á kvenréttindadaginn 19. júní og lág því beinast við að hún bæri nafn á glæsilegasta kvenskörungi Íslandssögunnar.
Hún er ljósrauð, vel byggð, snaggaraleg, glaðleg og lifandi. Vigdís hefur sýnt mikla ganghæfileika á sínu fyrstu mánuðum, hún er hágeng, skrefstór og virðist hafa mikla yfirferð á brokki amk. og tekur hreystilega á því á stökkinu. Hún er einkar efnilegt tryppi bæði hvað varðar hæfileika sína og einnig það að henni standa 1.verðlauna hross amk 2 ættliði aftur.
(t.d m: Daladís 1.v –mm: Valdís 1v. – mmm: Sædís 2v- 7,70 – mmmm: Vordís 1.v)
(f: Hágangur 1.v fm: Hera 1v, á 5 1.verðl afkvæmi, ff: Glampi 1v. )

Sigurdís frá Eiðisvatni
Védís
Sigurdís frá Eiðisvatni IS2008235298
Móðir : Valdís frá Erpsstöðum IS1991238231 Ae: 8,22 (sjá ræktunarhryssur )
Faðir: Þröstur frá Hvammi IS2001187041 Ae: 8,59

Védís frá Eiðisvatni
Védís
Védís