Hér er listi yfir hross til sölu hjá okkur.
1 hross til sölu. Það er Valkyrja frá Eiðisvatni.
Valkyrja IS2006235298, er 7 vetra, rauðskjótt, undan 1. verðlauna hryssunni Valdísi frá Erpsstöðum IS1991238231 (8,22) og 1. verðlauna hestinum Skrúð frá Litlalandi IS2001187140 (8,33). Í móðurleggnum er tvöfaldur Adam frá Meðalfelli þar sem stofnræktunarhryssan okkar (amma Valkyrju) er Sædís frá Meðalfelli sem var bæði systir Adams og dóttir (undan stórræktunargripnum Vordís frá Sandhólaferju.). Kynbótamat Valkyrju er 114.
Valkyrja er falleg, fín- og léttbyggð hryssa og var byggingardæmd pestarvorið 2010 og fékk 7,72 og því sem næst alveg ótrimmuð þá.. Hún er t.d með 8,5 f. höfuð og 8 f. háls, bak/lend og samræmi. Það er allur gangur í henni. Fetið er gott og rösklegt og hún gengur það alltaf slök þótt einhver æsingur sé í kringum hana. Hún er vel rösk á öllum gangi, sérstaklega á brokki og er ekki mikið fyrir hangs. Töltið er gott á köflum en vantar stundum stöðugleika, getur farið eftir dagsforminu. Skeiðið er alveg óæft og óþjálfað en engin spurning um tilveru þess. Valkyrja er aðeins ör í skapi, sérstakur karakter og vel viljug. Hún er ekki fyrir byrjendur. Hún flugteymist á báðar hliðar, það er hægt að teyma utan á henni og teyma á henni. Valkyrja er góð í allri umgengni, bæði á húsi og úti, og alltaf hægt að ná henni. Hún fór í nokkra daga hestaferð í fyrra með stóru rekstrarstóði og þar blómstarði hún :-) Valkyrja gæti bæði gagnast sem ræktunarhryssa og einnig sem reiðhestur en þyrfti meiri stöðugleika og agaðri þjálfun en núverandi eigandi getur veitt :-)
Verðhugmynd: .?
Hafa samband við Ásu, 6634574 eða [email protected]
Myndirnar hér fyrir neðan eru teknar í ágúst 2012 og knapi á Valkyrju er Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir. Myndin af Skjónu út í gerði er tekin nú í apríl.