Folöld 2013 á Eiðisvatni. Hér eru brúnn hestur undan Lind frá Erpsstöðum og Al frá Lundum II og rauðskjótt hryssa undan Valdísi frá Erpsstöðum og Dyn frá Dísarstöðum.
Hestaferð Sörla 15. til 19. júní 2013
Myndir apríl 2013
Hér er Sólberg Valdísar og Klettsson um miðjan apríl 2013
Myndir teknar þann 9. febrúar 2013 á Syðstu Fossum
Myndir hér fyrir neðan voru teknar 5. febrúar 2013
Þessar myndir voru teknar á dögunum af þeim frændum Árberg og Sigurberg. (3.jan´13)
Myndir teknar 3. nóvember ´12 af reiðhestunum í góðum hausthaga.
Hérna eru þeir frændur og félagar fæddir 2012, Sólberg Klettsson- og Valdísar, og Dísar Þrists -og Daladísarson. Myndir teknar 13.sept´ 12.
Hér fyrir neðan eru myndir teknar 27. ágúst 2012 af Dísari frá Eiðisvatni, sem er undan Þristi frá Feti og Daladís Tígulsdóttur.
10. ágúst 2012. Smá hestaferð um sveitina með alla 8-hrossakippuna. Riðið var frá Eiðisvatni, upp með Laxá, meðfram Skarðsheiði og í áttina að Borgarfjarðarbrú. Knapar eru Sigurjón Hrafn 12 ára, Arnór Hugi 14 ára og vinkona okkar hún Vigdís Erla 14 ára.
Sumarskoðun á Sigurbergi, veturgamall. Hér er hann ásamt félögum sínum sem eru auðvitað háættaðir og há bluppaðir eins og hann sjálfur. Þessir eru undan Stála frá Kjarri og Seið frá Flugumýri, og Sigurberg okkar sá jarpi undan Heimi frá Votmúla og Daladís. Skildu þeir verða í efstu sætum á landsmóti eftir 4 ár????
Árberg frá Eiðisvatni var skoðaður í byrjun ágúst og fékk sína reglulegu hófaklippingu.. Hann er 3ja vetra, undan Lind og Þresti frá Hvammi. Árberg okkar er sá dökkrauði en sá ljósrauði er alveg óþægilega fallegur 2ja vetra foli frá Eystra-Súlunesi og er albróðir Vála frá sama bæ. Eiginlega ætti ekki að birta myndir af honum með okkar fola þó hann sé auðvitað alveg sérlega fallegur... ;-)
Hér eru myndir frá júlí 2012. Þarna eru smáskjáskot frá teymingum á 4 vetra hryssunum Vigdísi og Sigurdísi. Svo tekur Bjarney Jóna Valkyrju skjónu til kostanna :-). Einnig er heimasætan Hrefna Rún að æfa sig á Þyrnirós.
Tryppajárningartúrinn frá Beitistöðum að Eiðisvatni þann 20. júní 2012.
Dísar frá Eiðisvatni.
Dísar frá Eiðisvatni undan Daladís og Þristi frá Feti. Eigandi er Peter Langenbach.