Lækur frá Erpsstöðum
Arnór Hugi á Læk
Lækur frá Erpsstöðum IS1996138231
Ætt:
F: Baldur frá Bakka IS1984165010 M: Gná frá Erpsstöðum - IS1989238231
FF: Náttfari frá Ytra-Dalsgerði MF: Adam frá Meðalfelli
MF: Sandra frá BAkka MM: Gnoð frá Erpsstöðum
Lækur er sérlega velbyggður fjölskyldu reiðhestur sem var heldur ódæll og kaldur í æsku. Hann var ekkert gefinn fyrir klapp sem tryppi og snéri sér alltaf út í horn þegar litið var á hann. Á fyrstu stigum tamningar var hann erfiður, og virtst alls ekki ætla að gefa sig. Hann sýndi merki um hræðslu og flóttavilja. Í raun má segja að hann hafi verið á leiðinni á sláturbílinn þegar núverandi eigandi tók hann í einfalda þolinmæðisvinnu. Ef til vill fékk hann meiri sjéns en aðrir vegna þess hve assk.. fallegur hann er. Margir mánuðir fóru í teymingar út úm allar trissur og rólegheita dútl í kringum hann. En sigur vannst að lokum og í dag er hann barna/fjölskylduhestur, en n.b þó ekki fyrir öll börn. Hver hefði trúað því að Lækurinn hefði breyst úr kraumandi stórfljóti í snotran bæjarlæk !!! (vá ... skáldlegt).
Lækur hefur mjög gott skrefmikið brokk, hæga töltið er vel falið, en yfirferðartölt má finna. Skeiðið er einnig þokkalegt.
Arnór Hugi hefur tekið þátt í gæðingakeppni í barnaflokki á Læk með góðum árangri.
Eigendur eru Arnór Hugi Sigurðarson og Ása Hólmarsdóttir.