Eyvör frá Eiðisvatni
IS2006235299
Faðir: IS1996157330 Tígull frá Gýgjarhóli (8,6)
Móðir: IS1997238231 Lind frá Erpsstöðum (8,06)
Eyvör hefur sérlega fallegan og velgerðan háls, samræmið í ágætu lagi, og lendin góð. Höfuðið er frítt en vottar þó fyrir merarskál.
Hún hefur trausta geðslagið hennar móður sinnar og fátt virðist koma henni úr jafnvægi, hún lætur sér fátt um finnast þó að t.d rúlluplast sé dregið yfir hana endilanga. Samt er hún aldeilis ekki dauf að neinu leyti, bara skynsöm og traust, eins og góðar heimasætur eiga að vera. Eyvör hefur allan gang og töltið er mjúkt. Hún virðist einnig stökkva og brokka vel. Það er ekki hægt að segja annað en að hún sé ákaflega eiguleg hryssa.Eyvör var frumtamin haustið 2009 af Bjarneyju. Eyvör var fljót að læra og sýndi allan gang strax í byrjun en valdi þó brokkið. Töltið var fljótt að koma til. Eyvör var hjá Birni Einarssyni á Hvanneyri sem fór með hana í kynbótadóm. Hún endaði með 7,72 í aðaleinkunn, sem skiptist nokkuð jafnt á hæfileika og byggingu. Við erum ósátt með brokkeinkunina sem var bara 7. Miðað við hvernig Eyvör var í hestaferð sem farin var stuttu eftir sýningu þá vantaði sko ekkert upp á brokkið!!! Af tæplega 100 hrossum í þeirri ferð var Eyvör án efa ein af bestu hryssum ferðarinnar. Hún hefur fína yfirferð á tölti, fnæsandi viljug og létt. Þessa vilja allir eiga :-)
Eigandi er Bryndís Hólmarsdóttir