Erpur frá Erpsstöðum
Erpur frá Erpsstöðum
1983-2010
Ætt:
F: IS1970125095 - Dreyri frá Álfsnesi
FF: IS1960186500 - Stjarni frá Bjóluhjáleigu
FM: IS1952225212 - Rauðka frá Korpúlfsstöðum
M: IS1965238736 - Hremmsa frá Ólafsdal
MF: IS1947184420 - Lýsingur frá Voðmúlastöðum
MM:IS1956238361 - Grána frá Ólafsdal
Um Erp.
Erpur (f:1983) litföróttur höfðingi, sem veit hvað honum líkar og hvað honum líkar ekki. Þetta er myndarhestur og mikill karakter. Hann er stórstígur á brokkinu og lyftir vel knapanum ásamt framfótunum. Töltið er mjög gott og hefur hann óhemju yfirferð á því. Erpur fór í kynbótadóm 6 vetra og var einn af fáum útvöldum stóðhestum sem fengu að vera á stóðhestastöð ríkissins í Gunnarsholti á sínum tíma. Eiríkur Guðmundsson heitinn tamdi Erp og þjálfaði. Hann fékk í aðale: 7,83, bygg: 7,8 og hæfil: 7,86. töltið best 8,5, en 8 fyrir rest og 6 fyrir skeið. Undan Erpi eru skráð rúm 50 afkvæmi og þar af tvær 1.verðlaunahryssur, Júnó og Kolbrún frá Brjánslæk, og nokkrar nálægt 1.verðl markinu. Afkvæmi Erps eiga það flest sammerkt að hafa gott tölt með fótlyftu og gott brokk. Hann var geltur 7 vetra.
Í bókinni Heiðajarlar (ritstj; Jónas Kristjánsson, útg ?) má lesa að Erpur hafi verið seldur til Danmerkur. Eigandi Erps vill gjarnan taka fram að slík staðhæfing er stórlega ýkt, í minnsta falli alls ekki satt. Erpur hefur aldrei til útlanda komið. Við vitum ekki af hverju þessu er haldið fram í umræddri bók,.
Nokkrum sinnum hafa komið upp skemmtilegar aðstæður þar sem glöggir hestamenn sem séð hafa Erpinn, hafa staðhæft að þetta sé ekki hann, því Erpur sé í útlöndum. Þessi litförótti hljóti að vera afkomandi hans. En eftir nokkuð þras og áhersluþunga á sannleikanum hefur að lokum tekist að leiða það sanna fram í þessu dularfulla máli.
Erpur eyddi síðustu árunum á Hornafirði hjá Bryndísi og Bjarneyju. Hann hefur verið reiðhestur þar í nokkur ár. Hann var reiðhestur Bjarneyjar þegar hún var að byrja í hestamennsku og hefur hann kennt henni heilan helling.
Fyrir um tveimur árum síðan var Erpur farinn að þynnast á síðu og vera stífur og hálf leiðinlegur í beisli. Þá átti leið um Hornafjörð danskur hestatannlæknir og Bryndís tók þá ákvörðun að senda þann gamla (þá 23 vetra) til tannlæknis. Nema bara hvað ..... eitthvað var pússað upp, og dregið út og lagað upp í klárnum. Og árangurinn var ótrúlegur!! Hann fór að éta miklu betur, gamla góða reisingin og "lúkkið" birtist aftur og taumsambandið létt og skemmtilegt. Þessi tannaðgerð virðist hafa gefið Erpi þónokkur ár í viðbót.
Erpur var felldur árið 2010 að sökum aldurs.