Ómur frá Erpsstöðum
Ætt;
F:IS1993184613 - Starri frá Hvítanesi
FF:IS1986186055 - Orri frá Þúfu
FM:IS1984284611 - Dýrðmunda frá Hvítanesi
M:IS1991238231 - Valdís frá Erpsstöðum
MF:IS1981157025 - Kjarval frá Sauðárkróki
MM: IS1981226005 - Sædís frá Meðalfelli
Ómur er feiknilega skemmtilegur og skapstór, rauður og faxprúður hestur sem er 10 vetra. Hann er talsvert skapmikill eða alla vega ansi sérstæður í skapi. Það getur fokið í hann snögglega ef aðstæður eru ekki nákvæmlega þær sem hann ætlaði. Ómur er einnig svolítil "dramadrottning" og ekki kæmi manni það á óvart að hann kæmi út úr skápnum einn daginn. Ef það er rigning og leiðinlegt veður reynir hann að verja sig gegn veðrinu, eins og hann vilji forðast að augnhárin og faxið blotni. En hann er velbyggður og hefur ágæta fótlyftu. Ómur er annars frekar hastur á brokki með mikið svif, töltið er allt að koma en hann hefur ekki mikla ferð á því, stökkið er hátt og fetið er skrefstórt, skeiðið er til staðar en ekkert hefur verið átt við það.
Ómur fór austur á Hornafjörð í mars 2008.