Eyvindur frá Eiðisvatni
Eyvindur og Hrefna Rún.
Móðir: Lind frá Erpsstöðum IS1997238231 (sjá hryssur) ae: 8,06
Faðir : Tígull frá Gýgjarhóli IS1996157330 Ae: 8,6
Eyvindur er stórglæsilegur foli fæddur 2008, geldingur. Hann er fæddur jarpur en verður grár. Hann sýnir allan gang og er alveg sérlega, eftirtektar- fallega byggður. Hann var frumtaminn í nóvember 2011 og lofar góðu með framhaldið.

Grímnir frá Eiðisvatni(Höfn)
Ætt:
F:IS1988165895 Gustur frá Hóli
FF: IS1973135980 Gáski frá Hofsstöðum
MF: IS1978257260 Abba frá Gili
M:IS1991238231 - Valdís frá Erpsstöðum
MF:IS1981157025 - Kjarval frá Sauðárkróki
MM: IS1981226005 - Sædís frá Meðalfelli
Grímnir er geldingur á 7. vetur.Hann er rauðstjörnóttur undan Gusti frá Hóli og Valdísi frá Erpsstöðum. Grímnir er úrvals reiðhestur og hinn skemmtilegasti karakter. Hann er með fallegt skref, mjúkt tölt og ágætan fótaburð. Grímnir var því miður myndaður spattaður í Janúar 2012. Hann er núna í fríi.
Eigandi er Bryndís Hólmarsdóttir

Lækur frá Erpsstöðum
Lækur frá Erpsstöðum IS1996138231
Ætt:
F: Baldur frá Bakka IS1984165010 M: Gná frá Erpsstöðum - IS1989238231
FF: Náttfari frá Ytra-Dalsgerði MF: Adam frá Meðalfelli
MF: Sandra frá BAkka MM: Gnoð frá Erpsstöðum
Lækur er sérlega velbyggður fjölskyldu reiðhestur sem var heldur ódæll og kaldur í æsku. Hann var ekkert gefinn fyrir klapp sem tryppi og snéri sér alltaf út í horn þegar litið var á hann. Á fyrstu stigum tamningar var hann erfiður, og virtst alls ekki ætla að gefa sig. Hann sýndi merki um hræðslu og flóttavilja. Í raun má segja að hann hafi verið á leiðinni á sláturbílinn þegar núverandi eigandi tók hann í einfalda þolinmæðisvinnu. Ef til vill fékk hann meiri sjéns en aðrir vegna þess hve assk.. fallegur hann er. Margir mánuðir fóru í teymingar út úm allar trissur og rólegheita dútl í kringum hann. En sigur vannst að lokum og í dag er hann barna/fjölskylduhestur, en n.b þó ekki fyrir öll börn. Hver hefði trúað því að Lækurinn hefði breyst úr kraumandi stórfljóti í snotran bæjarlæk !!! (vá ... skáldlegt).
Lækur hefur mjög gott skrefmikið brokk, hæga töltið er vel falið, en yfirferðartölt má finna. Skeiðið er einnig þokkalegt.
Arnór Hugi hefur tekið þátt í gæðingakeppni í barnaflokki á Læk með góðum árangri.
Eigendur eru Arnór Hugi Sigurðarson og Ása Hólmarsdóttir.

Ás frá Eiðisvatni
IS IS2004135298
Ætt:
F: Þristur frá Feti IS1998186906 M: Lyfting frá Reykjavík IS1991225259
FF: Orri frá Þúfu MF: Geysir frá Gerðum
MF: Skák frá Feti MM: Flís frá Reykjavík
Ás er efnisfoli sem taminn hefur verið í nokkrar vikur, vor og sumar 2008. Hann er mjúkur í skrokknum og töltir undir sjálfum sér með fótlyftu og stæl. Ás ber svo sum ekki af í fegurð innan um önnur hross í haga, en hann bætir það upp með reiðkostahæfileikum. Hann var orðinn ágætlega reiðfær, haust 2008, mest hefur hann brokkað í gegnum tamninguna, og örlítið átt við töltið sem rennur úr honum fyrirhafnar laust með þessari fínu lyftu J. Stökkið er dúnmjúkt takthreint „íþróttastökk“. En það er skap í honum og léttur þvergirðingsháttur, þannig að betra er að vera með öll ljós kveikt ef þannig má orða það. Hann hrekkti hnakk og knapa í fyrstu skiptin í vor, en lét það alveg ógert í sumar. ! Móðir hans Lyfting, sem bar nafn með réttu, var mjög góð reiðhryssa en nokkuð skaphörð og frek. Ás er eina afkvæmi hennar og væntanlega hefur erft eitthvað af lundarfari hennar. Á mynd sem fylgir má sjá hversu léttur folinn er í framfótarhreyfingum, hann er á bak við þann rauða og stendur meira að segja neðar ! Eigandi er Ása Hólmarsdóttir

Ás og Sigurjón - ágúst 2012
Eldjárn frá Erpsstöðum
Móðir: Hallgerður frá Skáney IS1992235807
Faðir: Seifur frá Efra-Apavatni IS1997238231
Eldjárn er hinn síkáti og brosandi reiðhestur. Eldfljótur á stökki og hefur sérlega gaman af því. Enginn hefur enn haft við honum á stökkinu !
Annars hefur allan gang, brokkar vel, mjúkur á töltinu, skeiðið er til staðar en lítið notað, háreistur og sérlega fallegur.
Hann er góður sem vinnuhestur við tamningar og ómissandi í hestaferðir. Ákaflega geðgóður, nokkuð viljugur, velvakandi og taumléttur.
Eigandi er Ása Hólmarsdóttir

Ómur frá Erpsstöðum
Ætt;
F:IS1993184613 - Starri frá Hvítanesi
FF:IS1986186055 - Orri frá Þúfu
FM:IS1984284611 - Dýrðmunda frá Hvítanesi
M:IS1991238231 - Valdís frá Erpsstöðum
MF:IS1981157025 - Kjarval frá Sauðárkróki
MM: IS1981226005 - Sædís frá Meðalfelli
Ómur er feiknilega skemmtilegur og skapstór, rauður og faxprúður hestur sem er 10 vetra. Hann er talsvert skapmikill eða alla vega ansi sérstæður í skapi. Það getur fokið í hann snögglega ef aðstæður eru ekki nákvæmlega þær sem hann ætlaði. Ómur er einnig svolítil "dramadrottning" og ekki kæmi manni það á óvart að hann kæmi út úr skápnum einn daginn. Ef það er rigning og leiðinlegt veður reynir hann að verja sig gegn veðrinu, eins og hann vilji forðast að augnhárin og faxið blotni. En hann er velbyggður og hefur ágæta fótlyftu. Ómur er annars frekar hastur á brokki með mikið svif, töltið er allt að koma en hann hefur ekki mikla ferð á því, stökkið er hátt og fetið er skrefstórt, skeiðið er til staðar en ekkert hefur verið átt við það.
Ómur fór austur á Hornafjörð í mars 2008.

Hlíðar frá Erpsstöðum
Ætt:
F: IS1993188879 - Seifur frá Efra-Apavatni
FF:IS1980187340 - Stígur frá Kjartansstöðum
FM:IS1987288780 - Freyja frá Efra-Apavatni
M:IS1989238231 - Gná frá Erpsstöðum
FM:IS1979125040 - Adam frá Meðalfelli
MM:IS1979238226 - Gnoð frá Erpsstöðum
Hlíðar er stór og myndarlegur klár. Hann er mjög góður reiðhestur, með þetta sófamjúka tölt og flotta skrefstóra brokk. Hlíðar kann spænska sporið og er mjög samvinnuþýður í svona öðruvísi æfingum. Skemmtilegur félagi og tryggur.
Hlíðar er í eigu Bryndísar Hólmarsdóttur