Í gær, voru Ás og Þyrnirósin tekin inn í hús á Beitistöðum, sem er hér í nágrenninu. Í vetur skal pússa upp gæðinginn sem býr í svarta folanum jarpa.!!
Hrímnir var svo sóttur upp á Syðstu-Fossa til Björns Einars sem er búinn að hafa þann gráa í trimmi í nokkrar vikur. Hrímnir var assk... flottur hjá honum, og bara spennandi að fá að hafa svona gæðing í húsinu hjá sér. Ég fékk einnig að fara á bak og reið smá spotta. Ansi hreint gaman. Viljugur, taumléttur, hlýðinn og góður.
En næst á dagskrá er að járna hina gæðinga, en fyrst þarf að gera atlögu að járningasnillum í sveitinni og bóka þá í verkið.
Hér fyrir neðan er mynd sem teknar voru af Hrímni í síðustu viku.
áh