Hvað er það eiginlega sem hrossin eru að éta? Þyrnirós og Eldjárn
Skömmu eftir að folinn Sólberg var tekinn á hús, fylgdu þau í kjölfarið í marsbyrjun Valkyrja og Eldjárn. Útreiðar hafa bara gengið bærilega miðað við að reiðvegurinn frá Beitistöðum og upp að Leirá er nánast ófær nema fyrir fetgang þar sem búið er að dreifa út grófu malarundirlagi fyrir reiðveg. En þá er bara að halda niðri í sér andanum þessa 2 km og prufa að renna sér aðeins á malbikinu. Fátt sem að toppar það! Þyrnirós og Ás voru svo tekin inn í byrjun apríl við mikla og hamslausa gleði heimasætunnar Hrefnu Rúnar. Ástandið á reiðhestunum eftir útiganginn var með ótrúlegum ágætum. Þau síðastnefndu höfðu ekki fengið neina tuggu í allan vetur og voru glansandi feit og fín og búin að vera í góðum haga frá því þeim var sleppt í september. Auðvitað er það ekki til almennrar eftirbreytni að gefa ekki útigangi út hey en þegar að veðurfarið hefur verið með ótrúlegum fáránleika eins og í vetur og hrossin í úrvals haga og fallega feit eins og þau eiga að vera á þessum árstíma þá er það algjör óþarfi að vera gefa hörðnuðum hraustum hrossum út. Ætli það hafi ekki setið snjór í um það bil samtals 7 sólarhringa frá því í október. Svolítið annað ástand en á Norðurlandinu.
Sigurberg hefur það gott á sínum góða uppeldisstað í Súlunesi og má sjá myndir af honum í myndasafninu. Einnig eru góðar fréttir að færa af Árbergi sem er í tamningu hjá Bjössa í Efri Hrepp og það er stefnt með hann í kynbótadóm. Sigurdís er fluggeng á öllum gangi en er ekki alveg að forma sig í tilætluðum höfuðburði, en það er stefnt með hana í kynbótadóm síðsumars.
Hrefna Rún 6 ára er orðin eldklár og örugg á Þyrnirós í útreiðum og það er ánægjulegt að fylgjast með hversu ljúft hrossið lætur þennan litla og mjúkhenta knapa stjórna sér hingað og þangað og fram og til baka. Þyrnirós er ómetanlegur moli... og auðvitað Hrefna líka :-) Mjög efnileg hestastelpa sem missir sig alveg ef hún kemst ekki í hesthús.;-)
Kíkið svo á myndasafnið.