Tvö folöld fæddust á Eiðisvatni sumarið 2013. Það var hin ægifagra Himinbornadís, rauðskjótt, undan Dyn frá Dísarstöðum og Valdísi frá Erpsstöðum. Svo var það Askur frá Steinnesi, brúnn, undan Al frá Lundum og Lind frá Erpsstöðum. Himinbornadís er í eigu Peter Langenbach og Askur er í eigu Magnúsar í Steinnesi. Bæði eru þetta ákaflega falleg tryppi, lofthá og reisuleg og fara um á fallegum gangi. Spennandi að sjá hvað verður úr þeim í framtíðinni.
Valdísi var síðan haldið undir Skálmar frá Nýjabæ sem tókst með ágætum :-) en Lind fór fyrst undir Daggar frá Einhamri með engum árangri og síðan til Skálmars með sama árangri. Þetta er ekki fyrsta sumarið sem Lind heldur ekki á miðju sumri og nú hafa sagt mér fróðir menn að slíkt komi stundum fyrir ef hryssur með folald undir sér, ná að þróa með sér "náttúrulega getnaðarvörn" (eins og það var sagt mér) ...þær halda ekki ef komið er framyfir folaldagangmálið... þ.e rétt eins og kona með barn á brjósti. Sem þýðir að hryssur halda bara annað hvert ár, nema á fyrstu 10 dögum eftir köstun. Merkilegt. Þannig að Lindin tær er tóm enda blómstrar sonur hennar Askur og er að verða ansi hreint stór.
Sigurdís (Þrastar- og Valdísardóttir) var í kynbótaþjálfun fram í júlí og stefnt var með hana í dóm í ágústmánuði og allt á ljómandi góðri leið. En þá vantaði hryssu til að fara með undir hinn glæsilega Nökkva frá Syðra-Skörðugili og var hún því tekin úr ´skólanum og sett beint í ræktun. Og er núna alveg glæsilega fylfull. Þetta verður eitthvað. Frænka hennar Vigdís (Hágangs og Daladísardóttir) fór undir fyrst í langt ferðalag norður í land til Galsa frá Sauðárkróki, fylgdi honum úr Skagafirðinum inn í Þingeyjarsýslu, en reyndist fyllaus eftir kynni sín af honum, og langt liðið á sumrið. Þá kom Blær frá Torfunesi til skjalanna og eiga þau von á afkvæmi seint nú í sumar :-). Daladísin fór fyrst til Heims frá Votmúla og þóttu nú miklar líkur á fyljun en allt kom fyrir ekki. Þá voru góð ráð dýr enda kominn ágúst mánuður þegar það uppgötvaðist og Dísin fékk prufutíma hjá Ölnir frá Akranesi og sá kunningi reddaði málunum. Daladísin á að kasta í ágúst byrjun. Sumsé á komandi sumri 2014 ættu ef allt gengur vel að fæðast 4 folöld og eigum við Eiðvatningar 2 af þeim.
Stóðhestar: Allt leit vel út með kynbótadóminn fyrir Árberg síðasta vor (2013) en náttúran yfirtók á honum höfuðið ef þannig má að orði komast og hann "söng" sig í gegnum dóminn. Hneggi hneggi hnegg.... Þessi ljúfi og kurteisi hestur :-( Hann fékk fínan byggingardóm enda er hann fallegur en hæfileikadómurinn langt undir getu og því sem hann var búinn að ´sýna. Árberg ´fór síðan til Sigurðar Óla Kristinssonar s.l haust sem líkaði mjög vel við peyjann. En svo kom í ljós að klárinn hefur heldur lítil eistu og því var ákveðið að gelda hann. En það breytir engu um það að þarna er á ferðinni alveg sérlega geðugur og flottur foli. Það er svo mikill sjarmi og þokki yfir þessum hesti. Frændi hans Sigurberg (Heims og Daladísarsonur) er enn að vaxa og safna hæfieikum og er að skella í 3 ár og því ekki nema um rúmt hálft ár þar til byrjað verður á tamningunni á honum. Þar liggja vonirnar núna með stórstjörnuna :-) ..... þar til annað kemur í ljós.