Við höfum verið að líta aðeins í kringum okkur eftir hentugum keppnishesti fyrir Arnór Huga (10 ára) með þátttöku á væntanlegu fjórðungsmóti á Kaldármelum í huga. Einhverjum sem væri aðeins betri en Lækur sem hann hefur verið að keppa á. Þar sem ekki á að kaupa neitt er bara litið á hrossaeign frændfólks og vina, með lán í huga (vaxtalaust ).
Arnóri bauðst að prufa gráan hest í Hafnarfirði sem er í eigu vina okkar, Hafliða og Guggu. Ekki sakar að hesturinn Harri er frá Erpsstöðum, er svona líka svakalega vel ættaður og frá góðu ræktunarbúi Hann er 10v, undan Sædísi frá Meðalfelli og Stíganda frá Sauðárkróki. Gugga og Hafliði keyptu hann sem ungann fola af föður vorum og hafa tamið hann sjálf. Harri er óreyndur keppnishestur, en er ganghreinn og huggulegur hestur, en er harður í skapi og getur verið þver. Besta gangtegund hans er fetið, en tölt og brokk er jafngott, og stökkið ágætt en þarf að æfa betur.

Í gær keppti Arnór Hugi og jafnaldri hans Harri, á Landsbankamóti Sörla í Hafnarfirði þar sem keppt var í þrígangi. Þetta var í annað skiptið sem þeir hittust Arnór og Harri. Og til að gera langa sögu stutta þá komust þeir í úrslit, öllum að óvörum. , en 14 keppendur voru skráðir til leiks.
Það var ekki á dagskránni sérstaklega því við mægðinin ætluðum á Ræktun 2009 í Ölfushöllinni. Og þar að auki margir sterkir keppendur sem tóku þátt. Þeir enduðu í 5.sæti sem er ótrúlega gott, og margt sem mátti líka læra til betrumbóta. Harri er ekki auðveldur hestur og Arnór ótrúlega duglegur að ráða við hann og klára sýningu. Og sem fyrr gleymir maður oft að drengurinn er ekki orðinn 11 ára.