Já já já.... haldið þið að það sé ekki bara komin færsla á siðuna! Jemin einasti. Nú er búið að
skipta um heimasíðuhaldara, og þá þarf að læra að gera og græja tæknimálin upp á nýtt.
Blogcentralsvæðið er víst að fara að loka þannig að það var ekki annað að gera en að koma sér upp
nýju svæði.
En nema bara hvað.... smá samantekt frá síðustu mánuðum. Eyvör Lindar-og Tígulsdóttir fór í
framhaldsskólanám til Bjössa á Syðstu-Fossum í janúar og námið hefur gengið mjög vel hjá henni
fram að þessu og stefnt er að því að fara með hana í kynbótadóm núna í vor.
Útreiðar hafa gengið vel frá eystri vinnustöð Eiðisvatnsbúsins, þ.e á Hornafirði hjá Bryndísi og
Bjarneyju, og þar hefur hann Ómur Valdísar og Starrason verið að blómstra sem aldrei fyrr en bróðir
hans Grímnir er því miður í veikindafríi þennan veturinn. Bjarney hefur verið að temja og þjálfa á fullu
fyrir Hornfirðinga. Og ekki má gleyma því að Bjarney varð framhaldsskólameistari í skeiði á dögunum
á Grun frá Hafsteinsstöðum.
Glæsifolinn Sigurberg Heimsson og Daladísar var tekinn inn á Beitistaði í mars, og hann heldur bara
áfram að vera flottur og efnilegur foli. Hryssan Dís fædd 2011 undan Valdísi og Glym, var svo tekin
undan i febrúar og flutt í sína heimahaga að Eyri í Svíndal til Finns og Lenu. Þar er hún aðalDísin og
hagar sér samkvæmt því, og hefur greinilega lært þessa drottningarhegðun frá henni mömmu sinni.
Paradís Asa-og Lindardóttir fædd 2011 er svo í hagagöngu hjá okkur fram á sumarið og er afar
skemmtilegur karakter.
Reiðhestarnir Valkyrja og Ás voru svo teknir inn í kjölfarið um miðjan marsmánuð enda ekki eftir
neinu að bíða. Þau eru bara í ágætu standi, og eigandanum finnst þau oftast vera að bæta sig. Í
síðustu viku var svo eðalgæðingurinn Eldjárn tekinn á hús og er í skipulagðri fituátaki. Hann er ekki
alveg nógu búralegur og í ljós kom þegar hann var raspaður að stórir tannbroddar voru að hrjá hann
Nú er bara að vona hann fari að hjarna við og fari að éta almennilega eins og eigandi hans gerir.!!
Mægðurnar Daladís og Valdís eiga að kasta á næstu vikum. Daladís er fylfull við Þristi frá Feti og
Valdís við Kletti frá Hvammi. Þegar þetta er skrifað er ekki alveg ljóst hvort þær fara í leigu og hvaða
stóðhestar verða fyrir valinu. En alla vega er verið að spá í Kristal frá Auðsholtshjáleigu, Loka frá
Selfossi, Tígul frá Gýgjarhóli (sem hefur BARA gefið okkur gott ;ö), Galsa frá Sauðárkróki..... ææjjáá
og alla hina. Það er svo mikið og gott úrval af stóðhestum.