Má til með að upplýsa lesendur um skyldaleika skrifarans við sigurvegarann í Ístölti Austurlands 2009, unglingaflokki, sem haldið var um helgina á Lagarfljóti.
Systurdóttir vor, Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir, sigraði unglingaflokkinn með glæsibrag á gæðingshryssunni Baun frá Kúskerpi sem er í eigu Hornfirðingsins Pálma Guðmundssonar. Og auðvitað fylgdist maður með í beinni á laugardagsmorgun í gegnum netið og hestafrettir.is. Gaman að því.
Það þarf auðvitað ekki að taka fram hversu kát fjölskyldan er með árangur frænku. Gæti mögulega hækkað hjá manni Bluppið. (hestamennskan pottþétt komin úr móðurættinni, það þarf nú ekki ræða það !)
Maður nottla kenndi stelpunni allt sem hún kann..... hóst hóst hóst.!!
Bjarney er ofurdugleg og lúsiðin hestakona á 16.ári, þjálfar, temur og járnar sjálf ! Takið eftir því ! spurning um að hún og systir taki mann í læri í þeim efnum.!
Að öðru. Myndavél var fengin að láni hjá merkilegri menntastofnun hér í sveit um helgina og skotið nokkrum myndum af stóðinu með aðstoð Kötlu minnar (hundur) sem átti að sjá um að hreyfiþáttinn í verkefninu. Það tókst misjafnlega illa. Annað hvort er myndasmiðurinn lélegur, myndavélin ömurleg eða myndefnið glatað. Ég hallast helst að því fyrsta.... það væri alla vega hrikalegt að viðurkenna það síðast nefnda. Þessar myndir verða settar inn fljótlega, eftir að ég „fótósjóppa“ þær aðeins til.
áh