Það fer að líða að köstun hjá Lind , enda er hún farin að gera vel að. Giska á að hún verði köstuð innan viku. Það er búið að ákveða að hún fari til Dyns frá Hvammi en hann verður í girðingu hér í næsta nágrenni í sumar. Valdís fer svo undir Gaum f. Auðsh.hjáleigu.
Merkilegt að hryssurnar, Daladís, Valdís og Lind fara allar undir Orrasyni!
Eyvindur (veturgamall) var tekinn í dag og gerður bandvanur. Gekk mjög vel. Hann teymist nú eins og taminn hundur. Hann var líka kembdur hátt og lágt, og undan þykku óhreinu vetrarhárunum kom þessi líka flotti foli. Töltið virðist vera kjörgangur hans og gerir það líka vel. En þrátt fyrir fegurðina og gott tölt, vantar hann þetta "eitthvað" til að halda eistunum og verður því geltur innan tíðar.
áh