Þá er hann komin inn á hús hann Sólberg Klettsson. Það gekk alveg glimrandi vel að koma honum á kerru en við vorum smá áhyggjufull um að þetta gæti orðið strembið þar sem hann er orðin ansi hreint stór og öflugur. En annað kom nú á daginn... eins og ljós þessi elska. Og ég er ekki frá því að móðir hans Valdís hafi verið hálf fegin :-) enda nóg hjá henni að gera að vera fylfull við Dyn frá Dísarstöðum.