Lómur kláraði leikskólann með sóma, og lauk fullnaðarprófi úr námsmarkmiðunum með glans. Hann fór svo á laugardaginn, beint í skólann í Skipanesi, enda ekki eftir neinu að bíða.
Nú eru þau Vigdís, Sigurdís og Eyvindur komin í hús á Beitistöðum. Hryssurnar eiga að vera þar í vist í ca 2-3 vikur, meðan verið er að venja þær undan, og aðeins að kenna þeim grunnatriði í umgengni og góðum húsvenjum. Eyvindur verður fram á vorið. Það gekk ótrúlega vel að setja þau á kerru, án nokkurra láta og hamagangs. Allt í rólegheitum. Það er bara svo ótrúlega gott geðslag í þessum hrossum..... Ræktandinn fær hrós fyrir það.

Það kom okkur aðeins á óvart hvað Eyvindur er nú stór og stæðilegur foli, þegar hann var kominn innan um bekkjarfélaga og jafnaldra. Það munar sjálfsagt rúmum 10 cm á honum og hinum folunum. Og ekki eru þær nú síðri frænkurnar, Sigurdís og Vigdís... finnst okkur Sérlegur hirðljósmyndari hrossaræktarbúsins að Eiðisvatni mætti með vélina og smellti af nokkrum myndum sem vonandi fá að komast í myndasafnið við tækifæri.