Gleðilegt nýtt ár. Þá er upprunnið enn á ný splunkunýtt ár og hið gamla rétt byrjað.
Frá síðustu færslu í september hefur bara verið rólegt í hestadeildinni á bænum. Hrossin hafa haft það súpergott í útiganginum enda tíð búin að vera með eindæmum góð í allt haust. Sennilega er Hvalfjarðarsveitin með veðursælustu og snjóléttustu svæðum landsins, amk miðað vð aðra landshluta. Folaldshryssurnar Valdís og Daladís með sína syni, fengu sína fyrstu tuggu um 20. nóvember og eru í afar góðu standi. Lindin okkar sem ekki átti folald í vor er svo ljómandi "megablómleg" núna að við sjáum ekki alveg jákvæðan tilgang í því að láta hana standa í heyrúllu til viðbótar við sitt ágæta holdafar. Annars er Lind fylfull núna við Al frá Lundum. Þannig að önnur hross á okkar vegum eru bara í útigangi ennþá og eru í frábæru ástandi, og við fylgjumst vel með þeim. Það er annars helst að frétta að í byrjun desember fór Árberg okkar (á 4.vetri)í tamningu til Björns á Syðstu-Fossum. Og það bara gengur svona ljómandi vel hjá þeim :-). Það er aðeins eitt atriði sem Árberg fær ekki plús fyrir en það er náttúran. Svolítið skrýtið að þessi ljúfi hestur sem alltaf hefur hagað sér til sóma skuli vera svona vel virkur á þessum árstíma... hmmm....! Á myndinni hér fyrir ofan eru einmitt Bjössi og Árberg sérdeilis kátir eftir vinnustund dagsins. Frænkurnar Sigurdís og Vigdís (á 5. vetri) fóru svo líka til Bjössa í dag. Þannig að það eru aldeilis nóg að gerast hjá "stórhrossaræktarbúinu"á Eiðisvatni :-). Til viðbótar bíður svo Eyvindur heima eftir að komast í skóla líka í vetur. Þau þrjú voru öll frumtaminn síðasta vetur.

Við kíktum aðeins á Sigurberg (á 2. vetri) um síðustu helgi þar sem hann er í uppeldi í Súlunesi. Þar er sérlega vel fylgst með honum og atlæti með miklum ágætum. Hann er sem fyrr afar glæsilegur foli sem við bindum vonir við að verði bæði hæfileikaríkur og fallegur í framtíðinni. Bara 2 ár í bið eftir að hefja tamningu á honum.
Kíkið svo á myndir í myndasafninu.
Kíkið svo á myndir í myndasafninu.