Já já... er ekki bara kominn mars 2014!! Sei sei.... og skamm skamm. Þvílík leti við annálaskrif. En jæja best að byrja á upprifjun.
Sumarið á Vesturlandi 2013 var með eindemum blautt. Sennilega komu bara 4 dagar í röð þurrir en það var í endann á júlímánuði. Annars rigndi eiginlega eitthvað á hverjum degi. En að sjálfsögðu var nú samt eitthvað átt við útreiðar. Fyrst ber að nefna ljómandi skemmtilega hestaferð með Sörlafélögum um miðjan júní, þar sem riðið var frá Heyholti við Svignaskarð að Snorrastöðum á Mýrum. Hestar sem fengu að fara í þessa fínu ferð frá Eiðisvatni voru Ás, Valkyrja, Eldjárn að ógleymdri hinum ómissandi töltsófa Þyrnirós :-) Mjög góð ferð þar sem reiðhestarnir mínir stóðu sig vel, og þá sérstaklega sem Ás vaknaði rosalega.
Svo var auðvitað skottast hér um sveitina á liðnu sumri og tekið þátt í hestlegum uppákomum eins og Kvennareið og Kynjareið sem báðar tókust mjög vel.