Hér er Sólberg, sem fæddur er í júníbyrjun.Fleiri nýjar myndir má sjá af honum í myndasafni. Við erum enn ekki alveg viss um hvort hann ætlar að vera gráskjóttur eins og faðir sinn eða brúnskjóttur. Sólberg kom heim í síðustu viku eftir 8 vikna dvöl í stóðhestgirðingu með móður sinni hér í nágrenninu. Hann er alveg bráðmyndarlegur og þroskaður foli. Og væntanlega (ekki alveg ákveðið) verður hann auglýstur til sölu fljótlega, enda alveg nóg fyrir litla hrossaræktandann að eiga 2 efnilega stóðhesta :-) En þetta er myndarhestur, enginn spööörning ! :-)
0 Comments
Góður dagur í dag fyrir góðar fréttir.
Nú er búið að sóna 1. verðlauna hryssurnar okkar þrjár og eru þær allar með staðfest fyl. :-) Daladís fór til Asa frá Lundum, Lind fór undir Al frá Lundum , og Valdís undir Dyn frá Dísarstöðum. Sólberg hinn brúnskjótti hefur stækkað mikið eftir fjarveruna síðustu 8 vikur í stóðhestagirðingunni með móður sinni. Myndarlegur foli. Þetta sumarið var hryssukeyrslan hjá okkur í dásamlegu lágmarki því allar hryssurnar fór til stóðhesta sem voru staðsettir innan 5 km keyrsufjarlægðar frá Eiðisvatni. Þvílíkur munur :-) Miðja hrossaræktarinnar greinilega staðsett í Hvaljfarðarsveit.!! Í myndasafninu http://eidisvatn.weebly.com/myndasoumlfn.html á síðunni má sjá nokkrar nýjar myndir t.d af hinum -bergunum, þ.e Sigurberg og Árberg sem eru í hagagöngu á úrvals bæ hér í sveit. http://fornhagi.is/Berglindjul12A.jpg
Kíktu á slóðina. Það er alltaf gaman að sýna myndir af fallegum hrossum og sérstaklega ef maður getur eignað sér það á einhvern hátt ;ö) Á myndinni á þessari vefslóð má sjá 2 ja vetra hryssuna Berglindi frá Eiðisvatni sem er undan Lindinni okkar og Dyn frá Hvammi, en hún býr annars norður í Eyjafirði, á Fornhaga. Myndavélin var tekin fram í vikunni og nokkrum myndum skotið af bráðmyndarlegum fola sem fæddist í vor. En það er hann Dísar frá Eiðisvatni. Fleiri myndir má sjá í myndasafni. Dísar er undan Daladís og Þristi frá Feti. Eigandi hans er einn af splunkunýjum eigendum afa hans, Tíguls frá Gýgjarhóli, sem býr í Þýskalandi og heitr Peter Langanbach. Við erum ekki alveg viss um hvernig Dísar ætlar sér að verða á litinn, hann fæddist mjög ljós (ljós mósóttur með dökkan ál) en er núna orðinn brúnn, og er enn með rauða klæðningu í eyrum og taglið svona ljóst. Sérstakt. Líklegast fer þessi fallegi og velættaði foli af landi brott næsta vetur. Það er engin smá útgerð í reiðhestadeildinni hjá okkur í sumar. Held að það hafi sjaldan verið jafn öflug útgerð..... alveg bara 8 hross á járnum :-). Þar gerir gæfumuninn að 4 vetra tryppin, Eyvindur, Vigdís og Sigurdís, eru öll á járnum. Þau voru frumtamin fyrir áramót með góðum árangri og í sumar fá þau að teymast með og trimma með reiðhestunum. Þau fara svo í framhaldstamningar næsta vetur, amk. hryssurnar.
Eins og síðustu ár fór bústjórinn á Eiðisvatni í hestaferð um miðjan júní með Sörlafélugum. Riðið var um Suðurlandið, Þjórsá- Rangá, Fljósthlíð- Landsveit á frábærum reiðgötum. Þetta var hin besta ferð, góður félagskapur og góðir hestar. Það voru þau Valkyrja og Ás sem fengu að fara í ferðina ásamt Eyvöru frá Eiðisvatni 6 v (undan Tígli og Lind frá Erpsstöðum) en hún var nýkomin úr kynbótaþjálfun frá Bjössa í S-Fossum. Og það er ekkert leyndarmál að hryssan Eyvör er algjört æði, og svo miklu miklu betri en einkunnir úr kynbótadómnum sýna. Án efa ein af bestu hryssum ferðarinnar, :-) og ekki eru þeir Sörlamenn illa ríðandi. Eyvör er svo komin austur á Höfn til eiganda síns. Heppin hún Bryndís að eiga þessa gæðingshryssu. Hún er skemmtilega viljug, kröftug og hefur mikla yfirferð á brokki og tala nú ekki um á tölti, svo er þetta fína skeið líka sem auðvelt er að leysa fram. Móðir hennar Lind f. Erpsstöðum, sem var fyllaus í fyrra, fór undir Íslandsmeistarann Al frá Lundum. Bjarney Jóna Hornfirðingur er komin til okkar á Vesturlandið og er að vinna nú í sumar hjá Bjössa á Fossum við tamningar. Hún kemur svo af og til og kíkir hér suður yfir Skarðsheiðina og ríður út með okkur á Eiðisvatni og tekur þau til kostanna. Védís frá Eiðisvatni 3 vetra ( undan Valdísi og Granda frá Skipaskaga) er farin til nýs eigenda í Mosfellsbæ og verður spennandi að sjá á næsta ári hvort að þar leynist ekki 1.verðlauna hryssa í Védísi, nógu falleg er hún alla vega og með allan gang. Einnig er farin að Eiðsvatnstorfunni hún Hafdís (2vetra) Valdísar og Gaumsdóttir, til sinna eigenda að Austurey við Laugarvatn. Þar er á ferðinni mikill gullmoli, og afar spennandi verður að fylgjast með henni. Hennar verður amk. saknað úr okkar litla stóði. Sigurberg veturgamall ( hinn afar glæsilegi) undan Daladís og Heim frá Votmúla var svo heppin að fá inni í beitarvist á Eystra-Súlunesi þar sem frændi hans Árberg er líka. En nú eru framundan spennandi mánuðir hvað varðar þann síðarnefnda þegar byrjað verður á hans tamningu. Fleiri myndir úr júlímánuði má sjá í myndasafni. Jæja, nú gengur þetta ekki lengur. Og hana nú. Aðalsíðuskrifarinn búinn að vera í leti-og ókunnáttukasti út af nýju útliti á heimasíðunni. En nú er það bara búið. Og þá er að rifja upp það markverðasta sem á daga hrossamennskunnar á Eiðisvatni hefur drifið vor og sumarmánuði 2012. Eins og sjá má hér fyrir neðan kom brúnskjótt hestfolald undan Valdísi og Kletti frá Hvammi sem hefur hlotið nafnið Sólberg. Það er í stóðhestanafna-þemanu hjá eigandanum sem á líka Árberg og Sigurberg. (næst kemur örugglega Karlsberg :-) Valdís fór síðan eftir landsmót til Dyns frá Dísarstöðum. Daladís eignaðist svo líka hestfolald undan Þristi frá Feti sem hefur fengið nafnið Dísar. Daladísin fór svo undir Asa frá Lundum II og er nú þegar sónuð fylfyll við honum. :-)
Já já já.... haldið þið að það sé ekki bara komin færsla á siðuna! Jemin einasti. Nú er búið að skipta um heimasíðuhaldara, og þá þarf að læra að gera og græja tæknimálin upp á nýtt. Blogcentralsvæðið er víst að fara að loka þannig að það var ekki annað að gera en að koma sér upp nýju svæði. En nema bara hvað.... smá samantekt frá síðustu mánuðum. Eyvör Lindar-og Tígulsdóttir fór í framhaldsskólanám til Bjössa á Syðstu-Fossum í janúar og námið hefur gengið mjög vel hjá henni fram að þessu og stefnt er að því að fara með hana í kynbótadóm núna í vor. Útreiðar hafa gengið vel frá eystri vinnustöð Eiðisvatnsbúsins, þ.e á Hornafirði hjá Bryndísi og Bjarneyju, og þar hefur hann Ómur Valdísar og Starrason verið að blómstra sem aldrei fyrr en bróðir hans Grímnir er því miður í veikindafríi þennan veturinn. Bjarney hefur verið að temja og þjálfa á fullu fyrir Hornfirðinga. Og ekki má gleyma því að Bjarney varð framhaldsskólameistari í skeiði á dögunum á Grun frá Hafsteinsstöðum. Glæsifolinn Sigurberg Heimsson og Daladísar var tekinn inn á Beitistaði í mars, og hann heldur bara áfram að vera flottur og efnilegur foli. Hryssan Dís fædd 2011 undan Valdísi og Glym, var svo tekin undan i febrúar og flutt í sína heimahaga að Eyri í Svíndal til Finns og Lenu. Þar er hún aðalDísin og hagar sér samkvæmt því, og hefur greinilega lært þessa drottningarhegðun frá henni mömmu sinni. Paradís Asa-og Lindardóttir fædd 2011 er svo í hagagöngu hjá okkur fram á sumarið og er afar skemmtilegur karakter. Reiðhestarnir Valkyrja og Ás voru svo teknir inn í kjölfarið um miðjan marsmánuð enda ekki eftir neinu að bíða. Þau eru bara í ágætu standi, og eigandanum finnst þau oftast vera að bæta sig. Í síðustu viku var svo eðalgæðingurinn Eldjárn tekinn á hús og er í skipulagðri fituátaki. Hann er ekki alveg nógu búralegur og í ljós kom þegar hann var raspaður að stórir tannbroddar voru að hrjá hann Nú er bara að vona hann fari að hjarna við og fari að éta almennilega eins og eigandi hans gerir.!! Mægðurnar Daladís og Valdís eiga að kasta á næstu vikum. Daladís er fylfull við Þristi frá Feti og Valdís við Kletti frá Hvammi. Þegar þetta er skrifað er ekki alveg ljóst hvort þær fara í leigu og hvaða stóðhestar verða fyrir valinu. En alla vega er verið að spá í Kristal frá Auðsholtshjáleigu, Loka frá Selfossi, Tígul frá Gýgjarhóli (sem hefur BARA gefið okkur gott ;ö), Galsa frá Sauðárkróki..... ææjjáá og alla hina. Það er svo mikið og gott úrval af stóðhestum. |