Við héldum 5 hryssum sumarið 2014 en aðeins tvö folöld komu í heiminn.
Valdís fór undir Jarl frá Árbæjarhjáleigu og sónaðist með fyli um haustið en því miður missti hún fylið einhvern tíma í vetur. Daladís fór undir Loka frá Selfossi og engin afurð kom úr þeim samskiptum. Valkyrja hin skjótta fór til drauma draumahestins Elds frá Torfunesi en því miður var bara núll og ekkert að gerast.
En Lind fór til Vita frá Kagðarhóli og Sigurdís fór til Klængs frá Skálakoti og sónuðust báðar með fyli.
Við höfum ekki lent í því áður að svo margar hryssur séu ekki með fyli og viljum bara trúa því að þetta sé bara tilviljun og ekkert í umhverfinu sem veldur þessu fylleysi.