Árgangur 2015 á Eiðisvatni samanstendur af tveimur hestfolöldum.
Snemma í maí kom svartur hestur, sem verður grár, undan Lind frá Erpsstöðum og Vita frá Kagaðarhóli. Stór og myndarlegur foli, og er líka alveg bráðskemmtilegur. Svakalega hress og skemmtilegur gæji sem var farinn að reyna að fylja hinar hryssurnar aðeins mánaðargamall. Hann hefur hlotið nafnið Silfurberg þar sem hann kemur til með að verða grár og er hluti af -bergþema eigandans. Fyrir eru í safninu Árberg, Sigurberg, Sólberg og Ásberg Smári.
Það má sjá stutt myndband af Silfurberg á Fjésbókar síður Gunnhildar Ágústsdóttur þegar þau mæðginin koma heim eftir 2ja vikna veru í Hafnarfirði hjá stóðhesti. Eins og sjá má er Silfurberg alveg svakalega kátur með það að vera komin heim :-)
https://www.facebook.com/gunnhildur.agustsdottir?fref=ts

Í júníbyrjun kastaði svo Sigurdís frá Eiðisvatni rauðu hestfolaldi undan Klæng frá Skálakoti. Hann hefur hlotið nafnið Dreyri. Folatollurinn undir Klæng var gefinn á skemmtun hjá Dreyra af Dreyrafólki (Skipaskagi) og til Dreyramanns sem var svo yndislegur að gefa mér hann. Og svo skemmir nú ekki fyrir að hinn stórgóði Dreyri frá Álfsnesi sem var í sérlegu uppáhaldi hjá okkur er langafinn. Fallegur foli, sem virðist ætla að verða hágengur amk.
Svo er hægt að skoða fleiri myndir í MYNDASÖFN hér fyrir ofan http://eidisvatn.weebly.com/myndasoumlfn.html