Nú er komið haust, amk. gefa fréttir það af Norðurlandinu sterklega til kynna, (eiginlega vetur þar), þó að við hér á syðri endum landsins finnum ekki óeðlilega mikið fyrir því.
En haustinu fylgja haustverkefni eins og að draga undan reiðhestum, gefa ormalyf og sleppa á hausthagann. Um helgina var aðeins byrjað á þessu skemmtilega verkefni þegar dregið var undan 4 vetra tryppunum og hluta af reiðhestahópnum og flokkað i girðingar.
Þau voru ofurstillt þau Vigdís, Sigurdís og Eyvindur, og mikið ofboðslega eru þetta annars ágæt tryppi á allan hátt :-) Þau fengu öll mánaðar frumtamningu hjá Birni á S-Fossum seint á síðasta ári.
Svona lika ljómandi geðgott og laus við stæla og leiðindi í umgengni. Í sumar hafa þau verið teymd með í reiðtúrum og líka látin hlaupa laus með í lengri dags -helgarferðum. Reyndar var farið á Eyvind í örfá skipti og tókst það með hreinum ágætum.
Það er búið að vera alveg rosalega gaman að teyma tryppin með í reiðtúrum og fylgjast með hvernig þau hreyfa sig, og átta sig jafnframt á karakternum í þeim, og hvernig þau hegða sér í hóp og ein. Sérstaklega er búið að vera ánægjulegt að vinna með frænkunar Vigdísi og Sigurdís og það skal viðurkennt hér og nú að það eru stórar vonir bundnar við þær báðar á næsta ári ..(en samt þorir maður varla að segja það upphátt...) Þær eru svo hressar, jákvæðar, léttleikandi gangur, yfirferð, kraftur, skref og fótlyfta, svo einhver lágstemmd orð séu sögð í algerri hógværð. Úbbs.... ! Ég sagði það. En þá er bara að standa við orðin Dísur!! Sömuleiðis er búið að vera gaman að vinna með Eyvindi. Þar er á ferðinni ákaflega traust lund, skrefstór, klárhestur með glæsileika. :-) Síðar í haust/vetur verður svo haldið áfram með tamningu á þeim. Svooooo... spennandi vetur og vor framundan..... og ekki má gleyma stóðhestinum Árbergi sem er að fara á 4. vetur og fær sína frumtamningu eftir ca. tvo mánuði.

Hér fyrir neðan eru svo myndir af 2008 árgangi. Eyvindur, Vigdís og Sigurdís. Og svo eru fleiri myndir í myndasafni :-)